Mæðgurnar málglöðu
Bollublogg
22.09.2009 13:11:12 / Yndislegust

Flutt í bæinn og allt að smella saman...

Já, við fjölskyldan erum flutt í bæinn :) reyndar eru nú nokkrar vikur síðan en við fengum bara netið í gær. Heimasíminn datt inn áðan og þá er bara eftir að koma sjónvarpinu í réttar tengingar. Þetta gengur víst bara ekki hraðar en þetta hjá Vodafone og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Öll vorum við að byrja á nýjum vinnustöðum, Doktorinn fílar sig vel og drengurinn líka, þó hann sé ekki þar sem hann var settur upphaflega. Eftir tæplega tvær vikur á leikskólanum var hann fluttur um deild, í stóru stráka deildina 8) Hann er sko alveg sáttur við það og þeir félagar KG og GK eru með snaga hlið við hlið og sitja svo hlið við hlið í kaffinu. Mín vinna er fín :) allt öðruvísi en ég er vön og það er ekki laust við að bakið sé pínu þreytt eftir hverja vakt :$ enda allt annað að hagræða barni en fullorðnum í rúmi. Þetta er líka öllu verklegri hjúkrun en ég er vön, fullt af sárum og svoleiðis :$ Tvisvar hef ég þurft að yfirgefa stofuna vegna skyndilegrar vanlíðunar sem fól í sér svita, svima, ógleði og annað slíkt.....:^) Ég er bara alveg einstaklega klígjugjörn manneskja og kúgast nokkuð auðveldlega. Það er ekki nóg með að sjúklingarnir og lyfjaskammtarnir sér stærri en ég er vön, það er ALLT stærra! Meira að segja sýnin sem ég tek eru stærri...sem ég skil ekki því þau eru unnin í sömu vélum....

Drengnum líkar söngskólinn vel :) enda ekki hægt að búast við öðru þar sem hann syngur stanslaust allan daginn :) Þeir feðgar fóru í réttir í Garpsdal um helgina og skemmtu sér vel. KG vildi nú samt ekki segja mér neitt frá ferðinni, hann neitaði að hafa hitt ömmu og afa og Geirmund og hann neitaði að hafa séð nokkrar kindur. En Litla Skott sá hann og þegar ég minntist á hana losnaði um málbeinið á honum og hann lék eftir allskonar hljóð sem hún á að hafa gefið frá sér :) krúttið :)

Næsta mál á dagskrá er að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera um helgina! Við eigum saman helgarfrí um næstu helgi og það hefur ekki gerst svo lengi að við séum bæði í fríi og ekkert stórt planað (eins og flutningar...) að við vitum ekki alveg hvernig við eigum að haga okkur! Einhverjar uppástungur?
kyngirun skrifaði
Gaman að heyra að þið kunnið vel við ykkur í vinnunni ykkar og á nýja/gamla staðnum

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagatal