Mæðgurnar málglöðu
Bollublogg
12.09.2011 22:29:06 / Báran

Númer eitt!

Ég get svarið það ég er ákveðin í að minnka aðeins við  mig.  
Er farin að drekka sexy sjeik í morgunmat og vonandi er það byrjunin. Vika eitt búin að náði að minnka við mig um tæpt kg:)  Hvað þetta varir lengi veit ég ekki en er á meðan er. Hefur gengið mjög vel síðustu viku en það koma smá bakslag í dag. Heimilisfræði kennarinn er alltof duglegur við að bera í okkur góðgæti. Fyrst var það rabbabarapæ ekkert svo rosa óholt er það? En það var verra með það sem koma seinna - yndislegir súkkulaðisnúðar, volgir, hver getur staðist þá? Og þar með var sykur og hveitilausi dagurinn fokinnnnnnnnn. 
Annars á ég nú að vera með ruslapokann fyrir framan skápana mína og henda öllum sykri út en ég bara tími því ekki:) það hlýtur nú samt að koma að því. 

Svo er það að fara að hreyfa sig. Hjólið mitt gjörsamlega ónotað eftir sumarið skil ekki afhverju það var tekið út í vor. verð að fara að gera eitthvað í þessu já og borða vítamín það þarf ég að fara að gera. Vandamálið er ekki að kaupa vítamínið heldur að muna að taka það inn!  

Annars ef einhver er að nenna að lesa þetta ennþá eftir svona langt hlé þá er allt ágæt að frétta af okkur. Prinsessan stjórnar og unglingurinn í danaveldi og eiginmaðurinn já hann þrælar og þrælar svo ég geti keypt allann þennan sykur sem ég á að vera að henda.

þangað til næst hafið það gott and cut out the sugar. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2011 00:47:46 / Hamingjuskott

Framtíðarflash...

Mig dreymdi draum um daginn. Við systurnar, þá orðnar 102 ára, 95 ára og 92 ára, bjuggum saman. Báran vildi fara í bað en hikaði eitthvað með annan fótinn í baðkarinu og kallaði til okkar: "Hvort ég er að fara í bað eða úr því?" Ég kallaði og sagðist ætla að hjálpa henni en hikaði í stiganum og kallaði: "Hvort er ég að fara upp eða niður stigann?" Yndislegust sagðist með hneykslunarsvip aldrei ætla að verða svona gleymin og bankaði í borðið 7-9-13 og sagði: "Ég kem og hjálpa ykkur um leið og ég er búin að athuga hver er að banka!" :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 22:09:05 / Kyngirun

Afram med ferdasöguna

Ja -i gaer bloggadi eg helling en thad hefur ekki komist inn enda var eg alltaf ad detta ut af netinu. Ja eg segi bara fruin i Hamborg hvad - thessi fru sem var i Freiburg slo theim öllum vid i kaupabrjalaedi skal eg segja ykkur. Tharf enga hjalp fra neinni. Keypti mer kapu og stigvel og svo eitthvad sma meira.
Thad verdur ekki sagt ad vid seum heppin med vedur og tho. Thad rignir alltaf thegar vid erum ad keyra en tekur sma hle thegar vid förum ut ur bilnum. Theesar fallegu sveitir sem vid erum ad keyra um eru tharna i rignaingarmistrinu - eg veit thad vel en thetta er allt svolitid gratt.
Forum um daginn i erupapark og löbbudum um og kiktum a hitt og thetta. Eg skellti mer i russibana en thurfti ad fara ein.
I dag forum vid fra Freiburg til Bregenz i Austurriki. Keyrdum i rigningu ad Bodenseevatni og skodudum blomaeyjuna Mainau labbandi. Thar sem vid aetludum ekki ad verda hundblaut tha keyptum vid okkur regnslar og um thad bil thegar vid höfdum fundid götin fyrir haus og hendur og trodid thssum utlimum thar i - tha stytti upp og rigndi ekki meir i dag. Sem betur fer. Svona hefur thetta verid vid sleppum vid mestu rigninguna en hun hangir yfir og himininn er grar og gugginn. Hitinn er i lagi en ekki meir en thad.
Eftir ad hafa skodad Mainau tokum vid bat og sigldum a vatninu til Bregenz og thar gistum vid a hoteli i midbaenum. Maturinn var ok og eftir mat forum vid i sma göngutur og hotelid er vid göngugötu og fullt af budum. Thar sem vid leggjum ekki af stad fyrr en kl 11 a morgun ma alveg eyda slatta fyrir thann tima. ef löngun verdur til thess.
Naest förum vid til Innsbrugh eda hvernig sem thad er skrifad og verdum thar nokkrar naedur og daga. Vonandi fer solin ad skyna eda tho ekki vaeri nema ad himininn fai sma blaan lit. Jaeja tha er bara bless bless i bili.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2010 20:07:21 / Báran

Dagur eitt!

Þá er búin dagur eitt í nýrri vinnu og ég held hann hafi nú bara gengið vel:lol:
Byrjaði á almennum fundi svo nýliðafundi og endaði á Olweusar námskeiði. Á morgun er það svo ADHD námskeið!
Það er búin að vera löng leið að þessu takmarki að næla sér í kennaramenn en það hafðistþ Ég er nokkrum sinnum búin að byrja á þeirri sögu en einhvernveginn aldrei póstað henni hér inn en geri það kannski við tækifæri:$
Ma og pa virðast skemmta sér vel í útlandinu þó sú gamla geti ekki verslað hahaha ég léti nú ekki hanka mig á því! Versla is my middel name!
Annars gengur allt sinn vanagang ja eða ekki. Alma að byrja í 5.bekk og unglingurinn með í FSN - hún fær ekkert að fara annað í skóla:o Húsbóndinn (eða sá sem heldur að hann sé húsbóndi) er komin með heyrn aftur og er að hætta að þjálfa, ja allavega í bili.

Aldrei að vita nema ég láti heyra í mér fljótlega aftur!

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2010 07:18:28 / Kyngirun

Midefropudraumur framh

Timinn lidur otrulega hratt tegar madur er ekki ad gera neitt. Vid komum til Freiburg i fyrradag. Hotelid er mjog fint nema vantar loftkaelingu og eg myndi alveg takka fyrir ad fa svoleidis flottheit. Erum i 7unda himni a 7undu haed. I gaer var keyrt um Svartaskog. Vid hjonakornin forum margt af tessari leid fyrir 19 arum en tad var bara gaman ad koma aftur a tessar slodir.
Adur en vid forum i rutuferdina tokum vid straeto i midbaeinn. Skannadi nokkrar budir en keypti litid. Kann ekki ad versla -stelpur mig vantar einhverjar verslunarodar til ad smita mig. Tad eru utsolur um allt og eg finn ekki neitt. Allar budir fullar og eg se ekki neitt. Er buin ad mata oll ha stigvel i Freiburg en passa ekki i neitt -Hver var ad halda tvi fram ad tjodverjar noti stor fot og sko - tad er bara bull skal eg segja ykkur -svo eg er buin ad akveda ad eg tarf ad fara i goda verslunarferd i haust.
Tetta matarvesen a mer gengur vel en helviti eru kokurnr minar hardar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2010 21:00:14 / Kyngirun

Midevropudraumur

Ja min er sest vid ad skrifa ferdasoguna - svona eins og hun er. Eg var buin ad baka heilan helvitis helling af glerhordum kimkokum til ad taka med mer ut. Ekkert ma klikka i frahaldinu. Ferdin gekk vel -segir sig sjalft -ef tad hefdi ekki verid ta vaerud tid buin ad fretta tak og eg ekki ad skrifa. ekki satt. Vid vorum komin til Heidelberg um midjan dag. Hotelid er fint og herbergid er mjog gott. Vid hjonakornin eigum alveg eftir ad akveda hvort vid sofum i tessu ruminu eda hínu´- nu eda badum.

Skelltum okkur i verslunarskodunarferd i gongugotunni Hauptstrasse. Her eru utsolur vinstri haegri. Ja stelpur tid myndud fila tetta. Vid skonnudum flestar budir - nei eg lyg - bara nokkrar. einhvern veginn ta kann eg ekki ad kaupa neitt. Gott verd en bara vantar kaupastudid i fruna. Sa gamli tolti med - ja bara oskop spakur greyid. tad ma hann eiga. Hann segir ad eg hafi snert hverja einustu flik sem fyrirfinnst a tessari gotu. en tad er nu eins og sannleikurinn snyr ad honum. Nei eg keypti ekki neitt. Bara labba og skoda. Setjast nidur a kaffihus med bjor og kok og skoda mannlifid. Sennilega er tad af tvi ad mig vantar ekki neitt.  ju stelpur eg aetla ad kaupa mer helling af fotum en bara ef eg fer i tad studid - og finn eitthvad sem eg passa i. 
svo var farid i kvoldmat a gamla kra sem heitir gullni falkinn. Snitsel i matinn fyrir alla og alsbert snitsel og graenmeti fyrir mig. Bara agaett -  
Vedrid er yndislegt-
a morgun a ad skoda Heidelberg kastala -tad er ad segja ef ekki rignir -enginn nennir ad labba um rustir i rigningu. Vid erum buin ad sja hann upplystan i fjarlaegd. Svo verdur farid til Freiburg og verid tar i 5 daga.
laet heyra fra mer sidar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 21:17:37 / Báran

Söngvakeppni - fjörið byrjað.

Þá er þetta byrjað aftur.   Ég má ekki setja út á fatnað valkyrjanna – þau eru víst flott segir fröken Yndisleg.

 

Lag eitt: Titanic hvað – byrjunin var skelfilega eitthvað leim en lagið vinnur á með hverri sek  en æi nei þetta er ekki að gera sig.  Lúkkið flott!

 

Lag tvö:  oo7 með kántrý – Ég er búin að heyra þetta lag nokkrum sinnum  í útvarpinu og það hljómaði betur þar en ég er viss um að þetta fer áfram.  Lúkkið voða eitthvað normal!

Lag þrjú: Vögguvísa útsett af gospel Óskari – ALLS ekki að gera sig. Setjum Íslenskan texta á þetta lag og þá gætum við farið að tala saman. Lúkkið svona Jogvan lúkk.

Lag fjögur: Lísa í Undralandi – Nei , nei , nei. Ekki að gera sig. Lúkkið Skelfileg stæling á Hafdísi Huld.

Lag fimm: ??????? -  Ekki minn stíll en þetta fer áfram en gerir ekki meira en það. Lúkkið eitthvað leim Britney – papa don´t preach ???? jesús þetta er bara ekki að gera sig.

Já þetta var ekki djúsí kvöld lögin ekkert spes og ég held bara að Matti hafi verið bestur í kvöld.

Hvað er þetta með símadjókið hjá þeim er þetta halllllóó eða hvað?

 

Eftir að hafa séð upprifjunina nokkrum sinnum þá venst lag eitt mjög vel, Matti flottur, Sjonni já ég vil enn fá íslenskan texta, lag fjögur æi það er eitthvað pirr pirr við þetta og lag fimm skánar bara ekkert.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 20:05:07 / Báran

Áskorun!

Við fengum áskorun og eins og allir góðir forsetar þá tökum við því. Við vorum sumsé beðnar um Júróvisijón blogg:lol: já jibby vertíðin er byrjuð aftur:lol:

Þar sem lög kvöldsins eru ekki byrjuð þá verður þetta júrómatarblogg.
Í forrétt var hvítlaukshumar, aðalrétturinn var lambafile og mðlæti og eftirrétturinn verður, komum honum ekki niður strax, Pavlova með rjóma og ávöxtum.  
Bara gott skal ég segja ykkur.

Gleðilegt ár allir saman!

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2009 15:01:31 / Yndislegust

Góð helgi framundan

Ég sé fram á góða helgi :) Við fjölskyldan ætlum að bruna á Nesið góða og taka með okkur tvö aukabörn og eina Unni! Að auki er ég að fá fréttir af því að fleiri ættingjar ætli að fjölmenna því elsta systir hans pabba og maðurinn hennar eiga hvorki meira né minna en gullbrúðkaup um helgina :) Til hamingju með það Sigrún og Bjarni :haha:

Bryggjuhátíðin er að bjóða í mat á morgun og ég læt góð boð aldrei framhjá mér fara. Ég er búin að vera að forvitnast um matinn en það eina sem ég hef fengið að vita er að í forrétt verður kræklingur og læri í aðalrétt. Ég hef nú ekki verið hrifin af kræklingum síðan í skólaferðalaginum um árið í Stykkishólmi en ég er nýr og betri matgæðingur og ætla mér að smakka og ég á fastlega von á því að mér muni þykja þetta gott :)

Ömmudrengnum hefur verið lofað ís í morgunmat og ævintýraferð að trébrú. Ég spurði hann í morgun hvað hann ætlaði að gera á Drangsnesi? ,,Ég ætla að trampa á trébrú og stanga tröllið sem kemur upp!" Geiturnar þrjár eru s.s. í uppáhaldi þessa dagana. Strax snemma á sunnudaginn þurfum við að kveðja því kl 14 mætir Söngvaborg í söngskólann og kl 15 er krakkaafmæli. Ef hann verður ekki uppgefinn eftir helgina þá veit ég ekki hvað! Eins gott að leikskólinn er lokaður á mánudaginn, hann getur þá hvílt sig þá! :)

Fyrir svona annasama helgi er gott að birgja sig upp af vítamínum og krafti :) Einn ískaldur og svalandi drykkur sem er í uppáhaldi hjá mér þessa dagana er appelsínusafi, frosin jarðaber og frosin bláber sett í blandara og volá! Enn betra ef maður á járn í fljótandi formi að skella því útí og bæta enn frekar við kraftinn :) Klikkar ekki og krökkum finnst þetta æði :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2009 15:35:00 / Hamingjuskott

Gordjöss fiskréttur

Fyrst Yndislegust var að setja inn uppskrift þá ætla ég að setja tvær uppskriftir af réttum sem ég eldaði um daginn. Báðir eru svona "hvað á ég til" réttir ;) og fyrir fjóra.

Fiskréttur:
fiskur (ýsa var í frystikistunni hjá mér)
frosið grænmeti: blómkál, brokkolí og gulrætur (til í frystikistunni líka)
Mexico steyptur ostur (til í ísskápnum).
Hrísgrjón (til í búrinu)

Soðin hrísgrjón sett neðst í eldfast mót, svo fiskur, grænmet og sósan, (sem var gerð úr Mexico ostinum og mjólk) og ostur yfir. Hitað í ofni þangað til osturinn er bráðinn. Ég sýð fiskinn og grænmetið áður en það getur vel verið að það þurfi ekki. Fyrir þá sem borða rækjur þá er örugglega delissijös að setja þær með fiskinum.

 * * * * *
Kjúlklinganúðlur
Kjúklingaafgangur, skorið í bita (til í frystinum, samsvarar ca 2 bringum)
2 pk Kjúklinganúðlur (þetta í litlu ódýru pökkunum)
gúrka og gulrætur (yfirleitt til í ísskápnum)

Sjóða núðlurnar, steikja kjúklingabitana og gúrkubita og gulrætur. Öllu blandað saman og dass af soya sósu yfir. Borið fram með hrísgrjónum og súrsætri sósu.

Bara gott :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2009 13:22:04 / Yndislegust

Gulrótarkássa...

Í kjölfarið á því að ég lét smyrja bílinn um daginn og gekk út með 120 þús króna reikning! 8| settist ég niður og gerði matseðla tvær vikur fram í tímann og ,,reglan" var sú að ég mætti helst ekkert kaupa nema mjólk, brauð, ávexti og grænmeti. S.s. kreppumatseðill :$  Ég varð s.s. að nýta til hins ítrasta það sem ég átti í skápunum, og það er ekkert lítið skal ég segja ykkur! Endalausar dósir af allskyns mat. Einhverra hluta vegna á ég 3 krukkur af nýrnabaunum inni í skáp en aldrei á ævinni hef ég nokkurn tímann eldað eitthvað með nýrnabaunum í! Fyrr en í gær ;)

Ég skar heilan rauðlauk smátt (ok, ég skar ekki sjálf, matvinnsluvélin mín sá um það ;) ) og steikti ásamt tveimur hvítlauksrifjum. Þegar laukurinn var orðinn mjúkur setti ég niðurrifnar gulrætur (matvinnsluvélin sá líka um það ;) ) ca 6 stykki og u.þ.b. 2/3 af vænni steinseljurót (niðurrifinni líka) útí. Steikti þetta saman í smá stund og bætti svo við fjórum niðurskornum tómötum, einni dós af niðursoðnum tómötum og tómatpurré. Sauð þetta í smá stund (vatn sem nemur einni niðursuðudós líka). Að sjálfsögðu setti ég eina af þessum þremur nýrnabaunadósum útí og saltaði, pipraði og setti svo SMÁ sterkt chili duft yfir. Sauð ennþá meira og volá!

Þetta bar ég fram með spelt spagettí, ristuðu brauði, niðurrifnu spínati, parmesan og fetaosti :) snilld skal ég segja ykkur og bragðast enn betur daginn eftir :) Hollt, ódýrt og einfalt :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2009 13:11:12 / Yndislegust

Flutt í bæinn og allt að smella saman...

Já, við fjölskyldan erum flutt í bæinn :) reyndar eru nú nokkrar vikur síðan en við fengum bara netið í gær. Heimasíminn datt inn áðan og þá er bara eftir að koma sjónvarpinu í réttar tengingar. Þetta gengur víst bara ekki hraðar en þetta hjá Vodafone og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Öll vorum við að byrja á nýjum vinnustöðum, Doktorinn fílar sig vel og drengurinn líka, þó hann sé ekki þar sem hann var settur upphaflega. Eftir tæplega tvær vikur á leikskólanum var hann fluttur um deild, í stóru stráka deildina 8) Hann er sko alveg sáttur við það og þeir félagar KG og GK eru með snaga hlið við hlið og sitja svo hlið við hlið í kaffinu. Mín vinna er fín :) allt öðruvísi en ég er vön og það er ekki laust við að bakið sé pínu þreytt eftir hverja vakt :$ enda allt annað að hagræða barni en fullorðnum í rúmi. Þetta er líka öllu verklegri hjúkrun en ég er vön, fullt af sárum og svoleiðis :$ Tvisvar hef ég þurft að yfirgefa stofuna vegna skyndilegrar vanlíðunar sem fól í sér svita, svima, ógleði og annað slíkt.....:^) Ég er bara alveg einstaklega klígjugjörn manneskja og kúgast nokkuð auðveldlega. Það er ekki nóg með að sjúklingarnir og lyfjaskammtarnir sér stærri en ég er vön, það er ALLT stærra! Meira að segja sýnin sem ég tek eru stærri...sem ég skil ekki því þau eru unnin í sömu vélum....

Drengnum líkar söngskólinn vel :) enda ekki hægt að búast við öðru þar sem hann syngur stanslaust allan daginn :) Þeir feðgar fóru í réttir í Garpsdal um helgina og skemmtu sér vel. KG vildi nú samt ekki segja mér neitt frá ferðinni, hann neitaði að hafa hitt ömmu og afa og Geirmund og hann neitaði að hafa séð nokkrar kindur. En Litla Skott sá hann og þegar ég minntist á hana losnaði um málbeinið á honum og hann lék eftir allskonar hljóð sem hún á að hafa gefið frá sér :) krúttið :)

Næsta mál á dagskrá er að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera um helgina! Við eigum saman helgarfrí um næstu helgi og það hefur ekki gerst svo lengi að við séum bæði í fríi og ekkert stórt planað (eins og flutningar...) að við vitum ekki alveg hvernig við eigum að haga okkur! Einhverjar uppástungur?

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2009 00:24:16 / Hamingjuskott

Vildarhvað?

Mig langar til Glasgow :) og hef verið að skoða hin ýmsu kjör hjá Icelandair. Ég gerði smá könnun um hversu hagkvæmt það er að fara í svokallaða vildarferð vs pakkaferð. Þá þarf ég að nota vildarpunktana mína, Skagamannsins og fleiri til að ná upp í þann punktafjölda sem þarf.
Ég komst að þessari niðurstöðu...:$ með þeim fyrirvara þó að a) ekki alveg sömu dagsetningar á ferðunum og b) að hótelverðið sé rétt sem gefið er upp á netinu.
1. Pakkaferð (flug og gisting í 2 nætur á Jurys Inn) kostar 46.350 kr pr ég eða 92.700 kr fyrir tvo því ekki ætla ég ein.
2. Vildarferð (bara flug). Þá þarf ég að nota 38.000 punkta (þarf að millifæra og borga tilheyrandi kostnað við það sem er 3000 kr fyrir hverja millifærslu en ég miða við eina). Ég þarf að borga 17.330 kr í skatta og bókunargjald. Svo þarf ég að finna gistingu og ef ég fer á Jurys Inn í 2 nætur þá kostar nóttin GBP 126 sem gera 25.830 kr (ef ég miða við gengi 205). Þá er ég komin upp í 46.160 kr pr ég.
HA!!!8| Það er sem sagt bara ekkert ódýrara að fara í þessa vildarferð sem á að vera svo ógissla sniðugt...
Svo fyrir utan það að ef ég ákveð að gista á Holiday hótelinu (mínu og Bárunnar) þá er gistikostnaðurinn mun lægri eða 13.735 kr og heildarkostnaðurinn 34.065 kr pr ég.

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 23:49:57 / Hamingjuskott

Norðurálsfíflin

Ég heyri ótrúlegustu sögur um öryggisatriði og fleira hjá Norðurál. Ég hlæ að þeim flestum enda sumt bara fáránlegt.
Skagamanninum mínum hefur oft verið hótað að vera rekinn af svæðinu. Fyrir hvað? Jú, að hafa ekki öryggisgleraugu. En þegar hann notar þessi öryggisgleraugu þá sér hann ekki hvað hann er að gera með kranann í 35 metra hæð, ekki mikið öryggi í því.:$
Einu sinni var hann líka stoppaður fyrir ofsaakstur. Hann var ekki mældur en fólkinu fannst hann keyra á ofsahraða (orðrétt). Hámarkshraði á svæðinu er 20 km/klst. Hann tékkaði á ökuritanum... hann var á 24! Þvílíkur ofsaakstur, enda stórhættulegur maður á ferð.8|
Svo er búið að banna hnífa á svæðinu (kemur Skagamanninum mínum ekki við). Þeir sem þurfa hnífa við vinnu sína þurfa að fá leyfi hjá næsta yfirmanni. Kvitta fyrir móttöku, segja ástæðu og kvitta fyrir þegar þeir skila. Svo sem ok upp að vissu marki. EN ákvörðunartöku um hnífabannið í mötuneytinu hefur verið frestað. HA? Má ekki nota hnífa í eldhúsinu?:$
Svo það nýjasta... það á að kenna Skagamanninum um að maður sem hann var að vinna með hafi fótbrotnað! Þvílík endemis vitleysa og Skagamaðurinn, þessi líka rólegi maður, er BRJÁLAÐUR.:klikk: Starfsmaðurinn fór ekki eftir því sem honum var sagt, var að toga í spotta sem hann átti ekki að toga í, flækti sig í rafmagnsköplum og datt. Starfsmaðurinn getur bara sjálfum sér um kennt!

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 23:22:46 / Hamingjuskott

Ljósanótt

Við fórum á Ljósanótt í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Við rötum ekki neitt í þeim bæ og vorum mjög fegin þegar við vorum stoppuð við komuna í bæinn og okkur var rétt götukort. Ég var ekki eins ánægð með kortið þegar ég ætlaði að fara eftir því, varð eiginlega bara svolítið mikið meira en pínulítið pirruð!:^) Þetta kort fær stóra falleinkunn. Við gátum ómögulega fundið út hvar við vorum á kortinu... þangað til ég áttaði mig á því að við vorum í annarri hvorri Njarðvíkinni og Njarðvík var ekki á kortinu heldur bara Keflavík. Já, ekki sniðugt að hafa bara annan hlutann af bænum.:s Ekki gert ráð fyrir að fólk komi á hátíðina sem ratar ekki um bæinn. Það voru bara nokkrar götur merktar á kortið. Engin kennileiti sem "almenningur" kannast við og gæti áttað sig. Hefði til dæmis verið mjög sterkur leikur að hafa kirkjuna, lögreglustöðina, N1, bankana og fleira í þeim dúr inn á kortinu. Inn á kortinu var aftur á móti hvar var hægt að leggja bílum og hvar klósettin voru... en það voru ekki endilega götuheiti við þær merkingar. Við ákváðum að taka rúnt á hátíðarsvæðið og gerðum alveg ráð fyrir umferðartöfum, sem auðvitað voru en við vorum ekkert að pirrast yfir því. Með hjálps þessa ómerkilega korts gátum við lesið út að það væri hægt að fara "hér" og "hér" til að komast "þangað". En nei, þá voru göturnar lokaðar. Ekki var það merkt inná. Maður mætti halda að þegar svona kort eru gerð sérstaklega fyrir "ferðafólk" að það séu almennilegar upplýsingar á þeim. Þegar við loksins fundum Reykjanes 2009 sýninguna var farið að sjóða á mér.:klikk: Fyrsta fólkið sem ég hitti þar inni voru konur merktar Reykjanesbæ og konugreyin fengu sko aldeilis að heyra í mér. Þær voru sammála mér eftir að hafa skoðað kortið og ég vona að þetta verði lagfært fyrir næsta ár.
Kvöldið var miklu skárra... þá fengum við fylgd og villtumst ekki neitt og nutum þess að horfa á tónlistaratriðin og frábæra flugeldasýningu.:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 80
Klukkan
Dagatal